Aðrar útgáfur af skjalinu:
PDF
Word Perfect.
Þingskjal 764, 128. löggjafarþing 405. mál: verkefni Umhverfisstofnunar (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 164 20. desember 2002.
I. KAFLI
Breytingar á lögum um brunavarnir, nr. 75/2000.
II. KAFLI
Breytingar á lögum um dýravernd, nr. 15/1994, með síðari breytingum.
Leyfi Umhverfisstofnunar þarf til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnuskyni sem ekki fellur undir búfjárhald. Einnig þarf leyfi Umhverfisstofnunar til að setja á stofn dýragarða, halda dýrasýningar og efna til dýrahappdrættis. Heimilt er Umhverfisstofnun að taka gjald fyrir útgáfu leyfisins. Gjaldið má ekki vera hærra en sem nemur kostnaði við útgáfu leyfisins. Ráðherra setur að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar gjaldskrá um útgáfu leyfa samkvæmt ákvæði þessu.
Leiki grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn lögum ber þeim sem verða þess varir að tilkynna það Umhverfisstofnun, héraðsdýralækni eða lögreglu í viðkomandi umdæmi.
Fulltrúum Umhverfisstofnunar og héraðsdýralækni er heimilt að fara á hvern þann stað þar sem dýr eru höfð og kanna aðstæður þeirra og aðbúnað. Eigi er þó heimilt að fara í þessum tilgangi inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum dómsúrskurði, sbr. þó 4. mgr. Lögregla skal aðstoða fulltrúa Umhverfisstofnunar og héraðsdýralækni ef með þarf.
Sé um minni háttar brot að ræða skal Umhverfisstofnun leggja fyrir eiganda eða umsjónarmann dýranna að bæta úr innan tiltekins tíma. Láti eigandi eða umsjónarmaður ekki skipast við tilmæli Umhverfisstofnunar getur stofnunin látið vinna úrbætur á hans kostnað.
Leiki grunur á að um sé að ræða alvarlegt brot gegn lögum þessum eða reglugerðum, sem settar eru með stoð í þeim, getur lögregla fyrirvaralaust tekið dýr úr vörslu eiganda eða umsjónarmanns. Í þessu skyni er lögreglu rétt að fara inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án dómsúrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi dýrunum heilsutjóni. Lögreglu ber að tilkynna Umhverfisstofnun þessar aðgerðir þegar í stað. Lögreglustjóri ákveður í framhaldi af því, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og héraðsdýralæknis, hvort dýrin skuli vera áfram í vörslu lögreglu þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið, sbr. 6. mgr. Á meðan dýrin eru í vörslu lögreglu er sveitarstjórn skylt að útvega geymslustað, fóður og umhirðu fyrir dýrin á kostnað eiganda eða umsjónarmanns. Sé sveitarstjórn það af einhverjum ástæðum ókleift og telji nauðsynlegt að láta bjóða dýrin upp, selja þau til lífs eða slátrunar eða láta aflífa þau að öðrum kosti skal eiganda eða umsjónarmanni dýranna þegar tilkynnt um þau áform og honum gefinn kostur á, sé það mögulegt, að setja viðhlítandi tryggingu fyrir greiðslu á kostnaði við geymslu, fóður og umhirðu fyrir dýrin uns dómur fellur, sbr. 6. mgr.
Telji Umhverfisstofnun nauðsynlegt, til að stöðva eða fyrirbyggja illa meðferð á dýrum, getur Umhverfisstofnun fyrirvaralaust og til bráðabirgða svipt eiganda eða umsjónarmann heimild til þess að hafa eða sjá um dýr þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið, sbr. 6. mgr.
Nú vill eigandi eða umsjónarmaður dýra ekki hlíta þeim aðgerðum eða ákvörðunum sem fyrir er mælt í 4. og 5. mgr. og getur hann þá borið ágreiningsefnið undir dómara, hvort sem er sérstaklega eða í opinberu máli sem höfðað kann að vera á hendur honum. Slíkt frestar þó ekki aðgerðum eða framkvæmd ákvarðana skv. 4. og 5. mgr.
Umhverfisstofnun er heimilt að ákveða að eigandi eða umsjónarmaður dýra skuli bera kostnað af aðgerðum skv. 2. og 4. mgr. Ákvörðun um greiðslu kostnaðar er aðfararhæf.
III. KAFLI
Breytingar á lögum um eiturefni og hættuleg efni, nr. 52/1988.
IV. KAFLI
Breytingar á lögum um erfðabreyttar lífverur, nr. 18/1996, með síðari breytingum.
V. KAFLI
Breytingar á lögum um framkvæmd samnings um bann við þróun, framleiðslu, söfnun og notkun efnavopna og um eyðingu þeirra, nr. 17/2000.
VI. KAFLI
Breytingar á lögum um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta fyrir Íslands hönd þrjá alþjóðasamninga um varnir gegn mengun sjávar af völdum olíu, nr. 14/1979, með síðari breytingum.
VII. KAFLI
Breytingar á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, nr. 7/1998.
Umhverfisstofnun annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og er stjórnvöldum til ráðuneytis um málefni er undir lögin falla.
VIII. KAFLI
Breytingar á lögum um innflutning dýra, nr. 54/1990, með síðari breytingum.
IX. KAFLI
Breytingar á lyfjalögum, nr. 93/1994, með síðari breytingum.
X. KAFLI
Breytingar á lögum um matvæli, nr. 93/1995, með síðari breytingum.
XI. KAFLI
Breytingar á lögum um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur, nr. 60/1992, með síðari breytingum.
XII. KAFLI
Breytingar á lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, með síðari breytingum.
Umhverfisstofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara og er ráðherra til ráðgjafar.
XIII. KAFLI
Breytingar á lögum um sinubrennur og meðferð elds á víðavangi, nr. 61/1992, með síðari breytingum.
XIV. KAFLI
Breytingar á lögum um skipulag ferðamála, nr. 117/1994, með síðari breytingum.
XV. KAFLI
Breytingar á sóttvarnalögum, nr. 19/1997.
XVI. KAFLI
Breytingar á lögum um tóbaksvarnir, nr. 6/2002.
XVII. KAFLI
Breytingar á lögum um varnir gegn mengun sjávar, nr. 32/1986, með síðari breytingum.
XVIII. KAFLI
Breytingar á lögum um veitinga- og gististaði, nr. 67/1985, með síðari breytingum.
XIX. KAFLI
Breytingar á lögum um vernd Breiðafjarðar, nr. 54/1995, með síðari breytingum.
XX. KAFLI
Breytingar á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum, nr. 64/1994, með síðari breytingum.
Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands skulu vera umhverfisráðherra til ráðgjafar og gera tillögur varðandi vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum eftir því sem tilefni er til.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með og stjórn á þeim aðgerðum af opinberri hálfu sem ætlað er að hafa áhrif á stofnstærð og útbreiðslu villtra dýra eða koma í veg fyrir tjón af þeirra völdum, sbr. VI. kafla.
Um stefnumótandi mál um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum skal haft samráð við Bændasamtök Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, hreindýraráð að því er varðar hreindýr, Skotveiðifélag Íslands sem og áhuga- og hagsmunasamtök um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Umhverfisstofnun leiðbeinir þeim sem stunda veiðar og aðrar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir tjón af völdum villtra dýra.
Náttúrufræðistofnun Íslands stundar rannsóknir á villtum stofnum spendýra og fugla og metur ástand þeirra, sbr. lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur ein heimild til að láta merkja villta fugla á Íslandi og getur stofnunin veitt einstaklingum leyfi til merkinga samkvæmt reglum sem hún setur og samþykktar eru af umhverfisráðherra. Reglur þessar skulu birtar í Stjórnartíðindum.
Hverjum þeim sem finnur eða handsamar merktan fugl ber að senda merkið, hvort sem það er íslenskt eða útlent, til Náttúrufræðistofnunar Íslands ásamt nánari upplýsingum um fundinn.
Veiðar skulu óheimilar á svæðum sem eru friðlýst vegna dýralífs. Umhverfisráðherra getur aflétt tímabundið eða rift þeirri friðun að fullu eða gagnvart tiltekinni tegund að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
Hreindýr.
Umhverfisráðherra getur heimilað veiðar úr hreindýrastofninum, enda telji Umhverfisstofnun að stofninn þoli veiði og að æskilegt sé að veiða úr honum.
Ráðherra ákveður árlega fjölda þeirra dýra sem fella má, eftir aldri, kyni og veiðisvæðum, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og birtir auglýsingu þar að lútandi í Lögbirtingablaði. Eignarréttur á landi þar sem hreindýr halda sig veitir ekki rétt til veiða á hreindýrum.
Veiðar á hreindýrum eru heimilar öllum er til þess hafa leyfi samkvæmt lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim. Af hverju felldu hreindýri skal greiða til Umhverfisstofnunar sérstakt leyfisgjald sem ráðherra ákveður árlega að fengnum tillögum stofnunarinnar. Við ákvörðun gjaldsins skal taka mið af kostnaði við vöktun hreindýrastofnsins og eftirlit og stjórn hreindýraveiða. Gjaldið skal þó ekki vera hærra en sem nemur þeim kostnaði.
Umhverfisstofnun annast sölu veiðileyfa og eftirlit með hreindýraveiðum og ræður til þess eftirlitsmenn. Umhverfisstofnun skiptir arði af sölu veiðileyfa og afurða felldra dýra að fengnum tillögum hreindýraráðs. Umhverfisstofnun gerir tillögu til ráðherra um árlegan veiðikvóta og skiptingu hans milli veiðisvæða að fengnum tillögum hreindýraráðs þar að lútandi.
Umhverfisráðherra skipar fjóra menn í hreindýraráð. Ráðherra skipar formann ráðsins án tilnefningar. Búnaðarsamband Austurlands og Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu tilnefna einn fulltrúa hvort og sveitarfélög á veiðisvæði hreindýra einn fulltrúa. Verði atkvæði jöfn á fundum ráðsins ræður atkvæði formanns. Hlutverk ráðsins er að vera Umhverfisstofnun og umhverfisráðherra til ráðgjafar um vernd, veiðar og nýtingu hreindýrastofnsins. Fulltrúum Náttúrustofu Austurlands og Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að sitja fundi hreindýraráðs og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Ráðið skal ár hvert gera tillögu til Umhverfisstofnunar um skilgreiningu ágangssvæða hreindýra, árlegan veiðikvóta og skiptingu hans milli veiðisvæða.
Um vanhæfi þeirra sem sitja í hreindýraráði og annast eftirlit með hreindýraveiðum gilda vanhæfisreglur sveitarstjórnarlaga. Verði Umhverfisstofnun eða eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar varir við að brotið sé gegn ákvæðum laganna og reglugerðum um hreindýraveiðar er heimilt að svipta viðkomandi veiðileyfi og leita aðstoðar lögreglu ef með þarf.
Ráðherra setur að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar nánari reglur um framkvæmdina, m.a. um veiðieftirlitsmenn og skiptingu arðs af hreindýraveiðum.
Náttúrustofa Austurlands annast vöktun og rannsóknir á hreindýrastofninum samkvæmt samningi við Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Náttúrustofa Austurlands gerir Náttúrufræðistofnun Íslands grein fyrir niðurstöðu, sbr. lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Af hverju felldu dýri skal greiða sérstakt gjald til þess að standa undir vöktun stofnsins og ákveður ráðherra upphæð gjaldsins, sbr. 3. mgr.
Gangi hvítabjörn á land þar sem fólki eða búfénaði er ekki talin stafa bráð hætta af er Umhverfisstofnun heimilt að láta fanga björninn og flytja hann á stað þar sem ekki stafar hætta af honum.
XXI. KAFLI
Breytingar á lögum um verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu, nr. 36/1974, með síðari breytingum.
XXII. KAFLI
Breytingar á jarðalögum, nr. 65/1976, með síðari breytingum.
XXIII. KAFLI
Breytingar á lögum um lax- og silungsveiði, nr. 76/1970, með síðari breytingum.
XXIV. KAFLI
Gildistaka.
Þingskjal 764, 128. löggjafarþing 405. mál: verkefni Umhverfisstofnunar (breyting ýmissa laga).
Lög nr. 164 20. desember 2002.
Lög um breytingar á ýmsum lögum vegna verkefna Umhverfisstofnunar.
1. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 3. mgr. 11. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnun.2. gr.
Í stað orðsins „dýraverndarráðs“ í 4. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar.3. gr.
1. mgr. 12. gr. laganna orðast svo:Leyfi Umhverfisstofnunar þarf til hvers konar ræktunar, verslunar, þjálfunar, tamningar, geymslu og leigu dýra í atvinnuskyni sem ekki fellur undir búfjárhald. Einnig þarf leyfi Umhverfisstofnunar til að setja á stofn dýragarða, halda dýrasýningar og efna til dýrahappdrættis. Heimilt er Umhverfisstofnun að taka gjald fyrir útgáfu leyfisins. Gjaldið má ekki vera hærra en sem nemur kostnaði við útgáfu leyfisins. Ráðherra setur að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar gjaldskrá um útgáfu leyfa samkvæmt ákvæði þessu.
4. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 17. gr. laganna:- 2.–3. mgr. orðast svo:
- 4. mgr. orðast svo:
Um stefnumótandi mál, svo sem setningu reglugerða, skal leita umsagnar dýraverndarráðs.
5. gr.
18. gr. laganna orðast svo:Leiki grunur á að meðferð á dýrum brjóti gegn lögum ber þeim sem verða þess varir að tilkynna það Umhverfisstofnun, héraðsdýralækni eða lögreglu í viðkomandi umdæmi.
Fulltrúum Umhverfisstofnunar og héraðsdýralækni er heimilt að fara á hvern þann stað þar sem dýr eru höfð og kanna aðstæður þeirra og aðbúnað. Eigi er þó heimilt að fara í þessum tilgangi inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án samþykkis eiganda eða umráðamanns húsnæðisins nema að fengnum dómsúrskurði, sbr. þó 4. mgr. Lögregla skal aðstoða fulltrúa Umhverfisstofnunar og héraðsdýralækni ef með þarf.
Sé um minni háttar brot að ræða skal Umhverfisstofnun leggja fyrir eiganda eða umsjónarmann dýranna að bæta úr innan tiltekins tíma. Láti eigandi eða umsjónarmaður ekki skipast við tilmæli Umhverfisstofnunar getur stofnunin látið vinna úrbætur á hans kostnað.
Leiki grunur á að um sé að ræða alvarlegt brot gegn lögum þessum eða reglugerðum, sem settar eru með stoð í þeim, getur lögregla fyrirvaralaust tekið dýr úr vörslu eiganda eða umsjónarmanns. Í þessu skyni er lögreglu rétt að fara inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án dómsúrskurðar ef brýn hætta er á að bið eftir úrskurði valdi dýrunum heilsutjóni. Lögreglu ber að tilkynna Umhverfisstofnun þessar aðgerðir þegar í stað. Lögreglustjóri ákveður í framhaldi af því, að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og héraðsdýralæknis, hvort dýrin skuli vera áfram í vörslu lögreglu þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið, sbr. 6. mgr. Á meðan dýrin eru í vörslu lögreglu er sveitarstjórn skylt að útvega geymslustað, fóður og umhirðu fyrir dýrin á kostnað eiganda eða umsjónarmanns. Sé sveitarstjórn það af einhverjum ástæðum ókleift og telji nauðsynlegt að láta bjóða dýrin upp, selja þau til lífs eða slátrunar eða láta aflífa þau að öðrum kosti skal eiganda eða umsjónarmanni dýranna þegar tilkynnt um þau áform og honum gefinn kostur á, sé það mögulegt, að setja viðhlítandi tryggingu fyrir greiðslu á kostnaði við geymslu, fóður og umhirðu fyrir dýrin uns dómur fellur, sbr. 6. mgr.
Telji Umhverfisstofnun nauðsynlegt, til að stöðva eða fyrirbyggja illa meðferð á dýrum, getur Umhverfisstofnun fyrirvaralaust og til bráðabirgða svipt eiganda eða umsjónarmann heimild til þess að hafa eða sjá um dýr þar til úrbætur hafa verið gerðar eða dómur fallið, sbr. 6. mgr.
Nú vill eigandi eða umsjónarmaður dýra ekki hlíta þeim aðgerðum eða ákvörðunum sem fyrir er mælt í 4. og 5. mgr. og getur hann þá borið ágreiningsefnið undir dómara, hvort sem er sérstaklega eða í opinberu máli sem höfðað kann að vera á hendur honum. Slíkt frestar þó ekki aðgerðum eða framkvæmd ákvarðana skv. 4. og 5. mgr.
Umhverfisstofnun er heimilt að ákveða að eigandi eða umsjónarmaður dýra skuli bera kostnað af aðgerðum skv. 2. og 4. mgr. Ákvörðun um greiðslu kostnaðar er aðfararhæf.
6. gr.
Í stað orðanna „eiturefnaeftirlits Hollustuverndar ríkisins“ í 1. og 2. mgr. 1. gr. laganna, orðsins „eiturefnaeftirlitsins“ í 2. mgr. 2. gr., orðsins „Eftirlitið“ í 3. mgr. 2. gr., orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 6. mgr. 23. gr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.7. gr.
Orðin „að höfðu samráði við eiturefnaeftirlit Hollustuverndar ríkisins og“ í 3. mgr. 12. gr. laganna falla brott.8. gr.
Orðin „og Náttúruverndar ríkisins“ í 2. mgr. 22. gr. laganna falla brott.9. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 2. mgr. 5. gr. laganna, orðsins „Hollustuvernd“ í 3. mgr. 8. gr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.10. gr.
4. mgr. 13. gr. laganna fellur brott.11. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:- Við bætist ný málsgrein sem verður 1. mgr. og orðast svo:
- 1. mgr., sem verður 2. mgr., orðast svo:
- Í stað orðsins „Hollustuvernd“ í 2., 3. og 4. mgr., sem verða 3., 4. og 5. mgr., kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.
12. gr.
Í stað orðanna „Hollustuverndar ríkisins“ í 1. mgr. 4. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar.13. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 4. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnun.14. gr.
Í stað orðanna „Hollustuverndar ríkisins“ í 1. mgr. 4. gr. a laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.15. gr.
1. mgr. 18. gr. laganna orðast svo:Umhverfisstofnun annast eftirlit með framkvæmd laga þessara og er stjórnvöldum til ráðuneytis um málefni er undir lögin falla.
16. gr.
Við 1. mgr. 2. gr. laganna bætist nýr málsliður sem orðast svo: Um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu gilda lög um framkvæmd samnings um alþjóðaverslun með tegundir villtra dýra og plantna sem eru í útrýmingarhættu.17. gr.
Í stað orðanna „Náttúruverndar ríkisins“ í 5. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar, Náttúrufræðistofnunar Íslands.18. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 2. mgr. 1. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnun.19. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 5. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.20. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 4. gr. laganna:- Orðin „í samvinnu við embætti veiðistjóra“ í f-lið 2. mgr. falla brott.
- Í stað orðanna „Náttúruvernd ríkisins“ í i-lið 2. mgr. kemur: Umhverfisstofnun.
21. gr.
Í stað orðanna „Náttúruvernd ríkisins“ í e-lið 1. mgr. 11. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnun.22. gr.
Í stað orðanna „Náttúruverndar ríkisins“ í 6. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.23. gr.
Við 6. gr. laganna bætist ný málsgrein sem verður 1. mgr. og orðast svo:Umhverfisstofnun hefur eftirlit með framkvæmd laga þessara og er ráðherra til ráðgjafar.
24. gr.
Í stað orðanna „Náttúruverndar ríkisins“ í 4. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar.25. gr.
Í stað orðanna „Náttúruvernd ríkisins“ í 10. tölul. 7. gr. laganna og orðanna „Náttúruverndar ríkisins“ í 2. mgr. 36. gr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.26. gr.
Í stað orðanna „Hollustuverndar ríkisins“ í 2. mgr. 6. gr. laganna og orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 2. mgr. 11. gr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.27. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 1. tölul. 2. mgr. og 5. mgr. 5. gr. laganna og orðanna „Hollustuverndar ríkisins“ í 1. mgr. 17. gr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.28. gr.
Í stað orðanna „Hollustuverndar ríkisins“ í 4. mgr. 5. gr. laganna og sömu orða hvarvetna annars staðar í lögunum kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.29. gr.
Orðin „Náttúruverndar ríkisins“ í 21. gr. laganna falla brott.30. gr.
Í stað orðanna „Hollustuvernd ríkisins“ í 1. mgr. 14. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnun.31. gr.
Í stað orðanna „Náttúruvernd ríkisins“ í 3. mgr. 4. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnun.32. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 6. gr. laganna:- Í stað orðanna „samþykki Breiðafjarðarnefndar“ í 2. mgr. kemur: leyfi Umhverfisstofnunar.
- Í stað orðanna „dómi Breiðafjarðarnefndar“ í 3. mgr. kemur: mati Umhverfisstofnunar.
33. gr.
Við 1. gr. laganna bætist ný orðskýring sem orðast svo: Ágangssvæði: nánar skilgreint svæði þar sem ágangur hreindýra er svipaður á öllu svæðinu.34. gr.
Í stað 2. og 3. mgr. 3. gr. laganna koma fjórar nýjar málsgreinar sem orðast svo:Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands skulu vera umhverfisráðherra til ráðgjafar og gera tillögur varðandi vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum eftir því sem tilefni er til.
Umhverfisstofnun hefur umsjón með og stjórn á þeim aðgerðum af opinberri hálfu sem ætlað er að hafa áhrif á stofnstærð og útbreiðslu villtra dýra eða koma í veg fyrir tjón af þeirra völdum, sbr. VI. kafla.
Um stefnumótandi mál um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum skal haft samráð við Bændasamtök Íslands, Samband íslenskra sveitarfélaga, hreindýraráð að því er varðar hreindýr, Skotveiðifélag Íslands sem og áhuga- og hagsmunasamtök um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum.
Umhverfisstofnun leiðbeinir þeim sem stunda veiðar og aðrar aðgerðir til þess að koma í veg fyrir tjón af völdum villtra dýra.
35. gr.
4. gr. laganna orðast svo:Náttúrufræðistofnun Íslands stundar rannsóknir á villtum stofnum spendýra og fugla og metur ástand þeirra, sbr. lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur.
Náttúrufræðistofnun Íslands hefur ein heimild til að láta merkja villta fugla á Íslandi og getur stofnunin veitt einstaklingum leyfi til merkinga samkvæmt reglum sem hún setur og samþykktar eru af umhverfisráðherra. Reglur þessar skulu birtar í Stjórnartíðindum.
Hverjum þeim sem finnur eða handsamar merktan fugl ber að senda merkið, hvort sem það er íslenskt eða útlent, til Náttúrufræðistofnunar Íslands ásamt nánari upplýsingum um fundinn.
36. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 7. gr. laganna:- Í stað orðanna „ráðgjafarnefndar um villt dýr“ í 2. mgr. kemur: Umhverfisstofnunar.
- 3. mgr. orðast svo:
- Í stað orðsins „ráðgjafarnefndarinnar“ í 5. og 7. mgr. kemur: Náttúrufræðistofnunar Íslands.
- 3. málsl. 6. mgr. fellur brott.
37. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 9. gr. laganna:- Í stað orðanna „ráðgjafarnefndar um villt dýr“ í 7. tölul. 1. mgr. kemur: Umhverfisstofnunar.
- 2. mgr. orðast svo:
38. gr.
1. mgr. 10. gr. laganna orðast svo:Veiðar skulu óheimilar á svæðum sem eru friðlýst vegna dýralífs. Umhverfisráðherra getur aflétt tímabundið eða rift þeirri friðun að fullu eða gagnvart tiltekinni tegund að fenginni umsögn Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands.
39. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 11. gr. laganna:- Í stað orðsins „Veiðistjóri“ í 1. og 4. mgr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.
- 3. mgr. orðast svo:
40. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 12. gr. laganna:- Í stað orðsins „veiðistjóraembættinu“ í 1. mgr., orðsins „veiðistjóraembætti“ í 2. málsl. 2. mgr., orðsins „veiðistjóraembættis“ í 4. mgr. og orðsins „veiðistjóra“ í 4. mgr. kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.
- 1. málsl. 2. mgr. orðast svo: Þar sem umhverfisráðherra ákveður, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, að nauðsynlegt sé að láta veiða refi til þess að koma í veg fyrir tjón af þeirra völdum, sbr. 7. gr., er sveitarstjórn skylt að ráða kunnáttumann til grenjavinnslu og skal hann hafa með sér aðstoðarmann.
41. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 13. gr. laganna:- 1. og 2. mgr. orðast svo:
- Í stað orðsins „veiðistjóraembættis“ í 3. mgr. kemur: Umhverfisstofnunar.
Þar sem umhverfisráðherra ákveður, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, að minkaveiðar séu nauðsynlegar til þess að koma í veg fyrir tjón af völdum minka er sveitarstjórn skylt að ráða kunnáttumann til minkaveiða.
42. gr.
14. gr. laganna orðast svo ásamt fyrirsögn:Ráðherra ákveður árlega fjölda þeirra dýra sem fella má, eftir aldri, kyni og veiðisvæðum, að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar og birtir auglýsingu þar að lútandi í Lögbirtingablaði. Eignarréttur á landi þar sem hreindýr halda sig veitir ekki rétt til veiða á hreindýrum.
Veiðar á hreindýrum eru heimilar öllum er til þess hafa leyfi samkvæmt lögum þessum og reglum settum samkvæmt þeim. Af hverju felldu hreindýri skal greiða til Umhverfisstofnunar sérstakt leyfisgjald sem ráðherra ákveður árlega að fengnum tillögum stofnunarinnar. Við ákvörðun gjaldsins skal taka mið af kostnaði við vöktun hreindýrastofnsins og eftirlit og stjórn hreindýraveiða. Gjaldið skal þó ekki vera hærra en sem nemur þeim kostnaði.
Umhverfisstofnun annast sölu veiðileyfa og eftirlit með hreindýraveiðum og ræður til þess eftirlitsmenn. Umhverfisstofnun skiptir arði af sölu veiðileyfa og afurða felldra dýra að fengnum tillögum hreindýraráðs. Umhverfisstofnun gerir tillögu til ráðherra um árlegan veiðikvóta og skiptingu hans milli veiðisvæða að fengnum tillögum hreindýraráðs þar að lútandi.
Umhverfisráðherra skipar fjóra menn í hreindýraráð. Ráðherra skipar formann ráðsins án tilnefningar. Búnaðarsamband Austurlands og Búnaðarsamband Austur-Skaftafellssýslu tilnefna einn fulltrúa hvort og sveitarfélög á veiðisvæði hreindýra einn fulltrúa. Verði atkvæði jöfn á fundum ráðsins ræður atkvæði formanns. Hlutverk ráðsins er að vera Umhverfisstofnun og umhverfisráðherra til ráðgjafar um vernd, veiðar og nýtingu hreindýrastofnsins. Fulltrúum Náttúrustofu Austurlands og Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að sitja fundi hreindýraráðs og hafa þar málfrelsi og tillögurétt. Ráðið skal ár hvert gera tillögu til Umhverfisstofnunar um skilgreiningu ágangssvæða hreindýra, árlegan veiðikvóta og skiptingu hans milli veiðisvæða.
Um vanhæfi þeirra sem sitja í hreindýraráði og annast eftirlit með hreindýraveiðum gilda vanhæfisreglur sveitarstjórnarlaga. Verði Umhverfisstofnun eða eftirlitsmenn á vegum stofnunarinnar varir við að brotið sé gegn ákvæðum laganna og reglugerðum um hreindýraveiðar er heimilt að svipta viðkomandi veiðileyfi og leita aðstoðar lögreglu ef með þarf.
Ráðherra setur að fengnum tillögum Umhverfisstofnunar nánari reglur um framkvæmdina, m.a. um veiðieftirlitsmenn og skiptingu arðs af hreindýraveiðum.
Náttúrustofa Austurlands annast vöktun og rannsóknir á hreindýrastofninum samkvæmt samningi við Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Náttúrustofa Austurlands gerir Náttúrufræðistofnun Íslands grein fyrir niðurstöðu, sbr. lög um Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur. Af hverju felldu dýri skal greiða sérstakt gjald til þess að standa undir vöktun stofnsins og ákveður ráðherra upphæð gjaldsins, sbr. 3. mgr.
43. gr.
2. mgr. 16. gr. laganna orðast svo:Gangi hvítabjörn á land þar sem fólki eða búfénaði er ekki talin stafa bráð hætta af er Umhverfisstofnun heimilt að láta fanga björninn og flytja hann á stað þar sem ekki stafar hætta af honum.
44. gr.
Í stað orðanna „ráðgjafarnefndar um villt dýr“ í 1. mgr. 17. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands.45. gr.
Í stað orðanna „Náttúruverndar ríkisins“ í 1.–4. mgr. 3. gr., 1. mgr. 4. gr. og 6. gr. laganna kemur (í viðeigandi beygingarfalli): Umhverfisstofnun.46. gr.
Í stað orðanna „Hollustuverndar ríkisins og Náttúruverndar ríkisins“ í 5. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar.47. gr.
Í stað orðanna „Náttúruverndar ríkisins“ í 2. mgr. 38. gr. laganna kemur: Umhverfisstofnunar.48. gr.
Í stað orðanna „að fenginni umsögn viðkomandi veiðifélags, Veiðimálastofnunar og Náttúruverndar ríkisins og með samþykki Hollustuverndar ríkisins“ í 25. gr. laganna kemur: að fenginni umsögn viðkomandi veiðifélags og Veiðimálastofnunar og með samþykki Umhverfisstofnunar.49. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2003.Samþykkt á Alþingi 13. desember 2002.